föstudagur, mars 17, 2006

Stóra barnið mitt á afmæli í dag!

Valgerður er orðin fjórtán ára, ótrúlegt hvað tíminn líður.
Heimilið er í rúst sem fyrr en það verður samt eitthvað aðeins reynt að dekra ungu konuna. Hún fær í það minnsta að velja matinn í kvöld.
Og ætli foreldrarnir beri ekki gjafir í gripinn að auki.
Til hamingju Valgerður!!!

1 Comments:

At 5:09 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hjartans óskir á afmælisdaginn, elsku "litla" frænka. Megirðu lifa í lukku en ekki í krukku eins og sagt var þegar við vorum á þínum aldri.

 

Skrifa ummæli

<< Home